Júlía í skóla

sunnudagur, apríl 08, 2007

Skírnin

Já nú er búið að gefa litla prinsinum nafn og skíra hann. Honum var gefið nafnið Kristján Logi og er Kristjáns hlutinn eftir afa hans honum Hermanni Kristján. Restin var bara svona út í bláin. Þetta gekk nú svona nokkuð vel fyrir sig, drengurinn þurfti nú aðeins að pústa út í miðri athöfn. Það er næstum hægt að segja að gráturinn hafi yfirgnæft sönginn í prestinum og fólkinu í athöfninni. Skemmtilegt eða þannig.

Allavega vorum við bara með athöfnina hér heima og nýji presturinn hann Guðmundur Örn skírði og var það bara mjög fínt hjá honum. Svo klikkuðu við hjónin á því að bjóða greyið prestinum veitingar með okkur eftir á. Ég hélt að Jón hefði boðið og Jón hélt að ég hefði boðið. Svo greyið presturinn fór bara heim og fékk ekkert að snæða hjá okkur. Sem varð til þess að ég var með þvílíkan móral í allan gærdag þegar ég uppgötvaði mistökin og hann er enn til staðar.

Svo verð ég líka að minnast á alla hjálpina sem ég fékk hjá Maju vinkonu. Hún eldaði og stóð svo eiginlega vaktina í eldhúsinu. Og ekki voru Dagrún, Ragga og Anna síðri. Bara æðislegt að eiga svona góðar vinkonur. Svo varð mamma eftir hjá mér í gær og hjálpaði með peyjan og við Jón gátum eiginlega gengið frá öllu.

Svo fór ég nú að skoða myndirnar úr veislunni og uppgötvaði þá það að það hefði alveg gleymst að taka myndir af Kristjáni og fjölskyldumeðlimum í skírnarkjólnum. Hann reyndar var ekki mjög ánægður þarna á eftir, grenjaði og var almennt þreyttur. En við getum nú bætt úr því síðar eða bara fljótlega en við getum víst ekki bætt þetta með prestin nema að biðja hann innilegrar afsökunar á þessu klúðri. Eins og þið heyrið enn með móral. En hér kemur ein mynd af prinsinum hjá Herdísi ömmu og Hermanni afa. Lifið heil


fimmtudagur, mars 29, 2007

Systkinin

Þau eru bara flottust þessi krútt. Það er ekki amarlegt að eiga svona flotta krakka og svona líka duglega. Mamman fær mikla hjálp frá stóru systkininum að passa og slíkt. Bara æði. Lifið heil


mánudagur, febrúar 19, 2007

Mánaðargamall



Já litli prinsinn varð mánaðargamall núna á laugardaginn, mikið er tíminn fljótur að líta. Það er svo stutt síðan að manni finnst að hann kom í heiminn. Núna er hausverkurinn að finna gott nafn á drenginn. Það var farið inn á þjóðskránna og þar getur maður skoðað og prentað út öll leyfð mannanöfn á Íslandi. Við prentuðum þetta út og þvílík skelfileg nöfn þarna innan um. T.d. Ljósálfur, Galdur, Skíði og Skúta, já Skíði og Skúta eru leyfð drengjanöfn. Talandi um bilun. En leitin stendur bara enn yfir og stefnt er á það finna það fyrir enda mars því þá er jafnvel stefnt á það að skíra. jæja látum þetta duga í bili. Lifið heil

fimmtudagur, febrúar 08, 2007

langt síðan síðast

Já það er ansi langt síðan maður bloggaði síðast á þessa síðu. En kannski eru breyttir tímar framundan með það hvað veit maður. Annars er bara allt gott hér, ég kláraði verslunarprófið síðasta vor og er þá stúdentinn bara eftir og er vonandi bara stutt í hann. Við fórum til Tenerife í frí síðasta sumar og var það bara æðislegt. En annars er aðalmálið á heimilinu að það er kominn nýr meðlimur í fjölskylduna, lítill prins og gengur bara vel með hann.

Hann er náttúrulega bara sætastur þessi litli prins, en látum þetta duga núna lifið heil.

föstudagur, október 14, 2005

Allar sögurnar

Já hvernig væri það að koma með allar sögurnar sem ég var búin að lofa ykkur hehe. Jæja við byrjum bara á byrjuninni fríinu. Við fórum sem sagt með Friðrik á Skagamótið í brjáluðu slagveðri. Tjaldað notabene í slagveðri og tekið saman í slagveðri. En Friðrik stóð sig æðislega og skoraði 9 mörk af þeim 15 sem liðið hans skoraði yfir helgina. Bara gaman hjá þessum peyjum.
Svo var nú flúið upp í bústað til Maju og Adda vegna veðurs og vegna þess að ég hafði verið boðuð í gallblöðruaðgerð, þannig að tjaldferðalagið fór fyrir lítið. En það var æðislega skemmtilegt upp í bústað. Það spilaði náttlega inní að við vorum með svo skemmtilegu fólki i fríi. Ég fór í aðgerðina og svo beint upp í bústað til mömmu og þeirra. Þar var ég og krakkarnir orðin fárveik, með strepptókokka á háu stigi, ég átti erfitt með að anda á nóttunni. Ekki mjög skemmtilegt og mikið gott að koma heim til sín eftir þetta frí.

fimmtudagur, ágúst 25, 2005

Er á lífi

Já ég er á lífi en það er bara svona þegar maður er í fríum og þess háttar þá gefst minni tími til þess að blogga en þetta er allt að koma. Er byrjuð í skólanum og ætla að segja ykkur góðar ferðasögur, sjúkrasögur og þjóðhátíðarsögur á næstunni. Lifið heil

mánudagur, júlí 04, 2005

Nýr frændi kominn í heiminn

Já nú er hann litli bróðir minn orðinn pabbi. Birgir og Aldís eignuðust flottan og sprækan strák 21. júní. Ég er nú ekki enn búin að sjá hann í persónu en fékk nokkrar flottar myndir af honum sem ég deili nú kannski með ykkur.


Annars er bara lítið að frétta. Pallurinn er kominn í gagnið og er bara æði. Við á leiðinni í frí, byrjum á því að fara með Friðrik á skagamótið þar sem hann ætlar að fara að keppa í fótbolta. Og við stoltu foreldrarnir ætlum að fylgjast með. Svo á að fara eitthvert þar sem sólin skín vikuna þar á eftir og svo á að taka stefnuna upp í bústað til mömmu þar sem allt liðið ætlar að hittast. Guð það held ég að verða læti hehe....... sem sagt bara gaman. En ég held að Birgir og Aldís ætli jafnvel að reyna að kíkja með litla prinsinn með sér. Við ætlum nú að kíkja á þau fyrir þann tíma. Getum nú ekki beðið í heila viku með það. Erum búin að bíða nógu lengi.
Þannig að það er bara tilhlökkun í fjölskyldunni með að fara í langþráð frí og hitta litla prinsinn. lifið heil.