Júlía í skóla

föstudagur, október 29, 2004

Föstudagur í blíðu og stríðu

Það var svo gaman að fara í skólann í morgun því ég vissi að ég yrði búin kl 10. Það er samt ekki leiðinlegt í skólanum. Nei langt frá því. Ég er með svo skemmtilegum krökkum í tímum og fínir kennarar. Nóg um það, hugsunum var auðvitað líka sú að það væri skemmtilegt að vera búin fyrr því slektið mitt er í heimsókn. En þetta var nú samt rólegasti föstudagurinn minn í langan tíma. Eiginlega bara ekkert sem ég þurfti að gera eða klára. Og ekki þurfti ég mikið að snúast í kringum liðið því það var í heimsóknum í dag og í kvöld.
En ég skrapp til Maju vinkonu í kaffi á meðan krakkarnir voru á handboltaæfingu og ekki kemur maður að tómum kofanum hjá henni. Auðvitað fær maður kaffi og undantekningalítið eitthvað gott með því líka. Fínt að eiga svona vini að.
Talandi um vini, ég hitti Gústaf og hann gaf mér skýringar á því afhverju hann kom ekki um daginn í kaffi. Hann lenti í vinnu en sorry eins og ég sagði og hann reyndar líka sjálfur, það eru til símar en hann kom því bara ekki í verk að hringja í mig. Eins gott að ég hafði Dagrúni til að hjálpa mér með smökkunina á þessum Súkkulaðikarmellum. Verð að búa til annan skammt fljótlega. Annars var svo gaman að kvelja Gústaf með karmellunum og gefa Evu þær fyrir framan hann því hann er sko í aðhaldi!!!!!! Sagði við Evu að það ætti sko að borða þær fyrir framan hann í vinnunni.
En við fengum þær gleðifréttir í dag að mótorhjólið sé komið á fraktina og við þurfum bara að hafa samband eftir helgi við eitthvað fyrirtæki sem er með alla pappíra og ganga frá þessu. Þá fer hjólið að koma til Eyja. Mikil tilhlökkun fyrir því þó ekkert verði hjólað á því fyrr en næsta sumar. Lifið heil

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home