Þriðjudagurinn
Fór í náttúrufræði í morgun og fékk út úr prófinu mínu. Ég fékk 9 og er nokkuð ánægð með það. Annars er nú bara lítið að ske hjá mér. Tók mig til í dag og prufaði Súkkulaðikarmellu uppskrift sem var auðvitað sjúklega góð. Fékk Dagrúni í heimsókn til að hjálpa mér að smakka. Því ekki lét Gústaf þessi elska sjá sig eins og hann ætlaði. Kvartar og kveinar um það að ég bjóði honum aldrei þegar ég er búin að baka eitthvað gott og svo kemur hann ekki þegar honum er formlega boðið á ákveðnum tíma og allt. Nú getur hann eiginlega ekki kveinað yfir neinu.
Svo eru mamma, Sigurður og Anita að koma í heimsókn á fimmtudaginn. Það er mikil tilhlökkun á heimilinu yfir því. Það verður gaman að sjá þau og mömmu. Hef nú ekki séð mömmu síðan í ágúst og Sigurð síðan í júní. Það verður flott. Ég er farin að huga að jólagjöfum og systkini mín mega alveg fara að koma með einhver hint til mín. Er að plana að fara að föndra meira og slíkt. Allavega fara að föndra jólakortin með Írisi.
Nú fer nýja (gamla) mótorhjólið okkar að fara að koma frá Bandaríkjunum og það er mikil tilhlökkun yfir því að sjá það. Ebay er bara snilld. Lifið heil.

1 Comments:
At 2. nóvember 2004 kl. 11:50,
Júlía Elsa said…
Takk kærlega Birgir minn og vonandi er hún bara komin í favorits.
Skrifa ummæli
<< Home