Vinna og aftur vinna
Já ég var í alveg brjálaðari vinnu á laugardagskvöldið. Það var lundaball og það var svo gaman hjá öllum og allir skemmtu sér svo vel, ég líka. Ég er náttúrulega að vinna með svo afburða skemmtilegu fólki að annað er ekki hægt.......En mikið var ég þreytt á sunnudeginum. Jón var líka í vinnu, fór í vinnu á laugardagskvöldið kl 9 og kom heim í hádeginu daginn eftir. Þá var ég um það bil að koma mér á fætur en ekki sú hressasta. Börnin voru heima með vinkonu hennar Írisar og pössuðu sig sjálf. Það gekk alveg furðuvel að mér finnst. En ég sendi sem sagt börnin út að leika þegar ég fór á fætur svo Jón gæti fengið einhver svefnfrið..... Það var nú ekki mikið um stemmingu fyrir því að elda kvöldmat þannig að hlöllar urðu fyrir valinu og allir nutu vel. Allir voru svo þreyttir að það var farið í bólið kl 10. Þar með talin hjónin. Jæja þetta er gott í dag. Lifið heil.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home