Eitt próf búið
En nú bíður lærdómur eftir mér fyrir næsta próf á morgun. Það er lotupróf í nát 103. Það eru kaflar um vistkerfið sem mér finnst nú ekki neitt sérstaklega auðveldir. En ég hlýt að meika það.
Ég kláraði allan bakstur um helgina og nú eru til 5 tegundir af smákökum heima hjá okkur. Sem vonandi endast fram að jólum. Við erum sko smákökuátsfjölskylda hehe. Reyndar fá gestir og gangandi líka smakk hjá mér.
Og það var bara geggjað og gaman i vinnunni um helgina. Sálin er mjög skemmtileg og ekki skemmir fyrir þetta frábæra fólk sem ég vinn með. Við mættum allar í rauðum bolum í vinnuna og þrjár af okkur í eins bolum meirað segja og slógum auðvitað í gegn. Maja skvísa mætti um helgina í fyrsta skiptið eftir barnsburð og ég held að henni hafi bara fundist geggjað. Enda hvernig er annað hægt með þessu líka frábæra liði sem til staðar. Lifið heil
