Júlía í skóla

mánudagur, nóvember 08, 2004

Búin

Búin búin búin........... Ég er svo feginn að ég er búin með þessa ritgerð. Þetta kom allt með kalda vatninu. Ég var reyndar fram til 2 í nótt að klára hana. Búa til forsíðu og svona fínisera. Nú er ég alveg ákveðin að gera seinni ritgerðina ekki alveg svona á síðustu stundu. Það er ritgerðu upp úr bókinni Dauða rósir eftir Arnald. Það er mikið auðveldara því sú bók er nú skemmtilegri að mínu mati.
Nú er Sigurður bróðir á leiðinni heim til Danaveldis. Er nú bara í flugvélinni á meðan ég skrifa þetta. En við sjáum þau vonandi fljótt aftur.
Búðarrápið hjá mér á laugardaginn hafði ávöxt. Ég var komin með 5 jólagjafir þegar ég loksins hélt heim. Mér finnst að þetta mætti vera oftar. Það er svo gaman í svona búðarrápi. Eina sem mig vantaði á laugardaginn var vinkona til rápa með. Það er náttúrulega það allra skemmtilegasta. En það er svona þegar það er mikið að gera hjá öllum. Lifið heil

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home