Laugardagur til lukku
Nú er bara komin laugardagur í allri sinni rigningadýrð og ég er bara komin með hálfa síðu fyrir þessa ritgerð sem er að gera út af við mig. Það er ekki það að ég veit alveg um hvað hún á að fjalla en ég á í miklum erfiðleikum við að koma þessu á blað. Vonandi kemur andinn yfir mig í dag því ég á að skila eftir 2 daga.
Svo er bara langur laugardagur í eyjum í daga í öllum búðum. Tilboð og svona. Ég held að það sé bara skylda að fara í smá búðarráp. Það gæti verið að ég mundi jafnvel hitta á einhverja góðar jólagjafir. Alltaf að hafa augun opin. Veðrið reyndar hvetur mann ekkert til að fara út en ætli ég láti mig ekki bara hafa það.
Reyndar var planið að fara upp á Selfoss og kveðja Sigurð bróðir og hitta Maríu systir og svona en það varð ekkert úr því. Bæði liggur þessi ritgerð á mér eins og mara , svo á Íris að syngja með kórnum í kirkjunni á sunnudaginn og það var afmæli seinnipartin á föstudeginum. Allt þetta hjálpaði til við að stoppa mig af. Reyndar tilkynnti sonurinn mér það líka að það kæmi ekki til greina að fara í Herjólf því hann ældi alltaf. Ég reyndi nú að draga úr því en hann stóð nú fastur á sínu. Enginn Herjólfur. Þannig að við förum nú bara seinna.
Ég var nú mikið að pæla í því í vikunni að það væri nú ágætt ef þessi skrif mín kæmu ekki fyrir sjónir annarra. Þá gæti ég tjáð mig enn frekar. Þá væri þetta meira svona eins og dagbók fyrir mig. Þá gæti ég hellt mér yfir þennan og hinn án þess að lenda í einhverjum vandamálum. En ég leysti þetta nú bara þannig að ég fór og hellti mér yfir Önnu vinkonu. Skellti öllum mínum hugrenningum á hennar herðar og hún bar það nú bara vel. Mikið er gott að eiga svona vini.
Lifið heil

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home