Listinn
Ég kláraði nát prófið í morgun og gekk bara mjög vel. Ég er náttúrulega snillingur. Ég fékk hér komment um það að deila þessum lista með fleira fólki. Viðurnefnalistanum þar að segja. Og hver veit nema ég leyfi nokkrum nöfnum að fjúka. En vil taka það vel fram fyrst að þetta á ekki að vera móðgun við neinn. Það er spurning um að dæla nöfnunum inn hægt og bítandi svo fólk hafi nú eitthvað að hlakka til. Allavega koma hér nokkur nöfn:
Addi Durgur,Óli fluga, Steini sopi, Diddi dropi, þetta eru eða voru bræður, Helga sængurlausa, Gugga dúkur, Óli pjakkur, Arnar hross, Eiríkur hestur, Ásta á sjö, Gaui flækingur, Kalli eiturmilljón (helvíti), Gvendur afturmastur, Villi Túlipani, Dadda skó, Bíbí Sí, Óli sjöstopp, Jón heitinn, Gvendur fokk,Siggi ísí, Siggi austanblær.
Það eina sem síðasti maðurinn hafði til saka unnið fyrir aukanafnið austanblær var að hann var að austan. Njótið vel og lifið heil.

3 Comments:
At 17. nóvember 2004 kl. 16:29,
Nafnlaus said…
Frábær viðurnefni.... væri nú samt gaman að fá að vita af hverju helmingurinn hefur þessi nöfn... annars skýra sum sig sjálf :) endilega meira meira meira :)
Kveðja
Jóna Sv.
At 23. nóvember 2004 kl. 19:56,
Volosvej.dk said…
Gaman af thessum vidurnefnum. Eg sa ad Dadda amma er a listanum ;) Stolt af thvi. Eg mundi gjarnan vilja sja fleiri vidurnefni :)
At 7. desember 2009 kl. 00:28,
Nafnlaus said…
Siggi austanblær var afi minn :o)
Skrifa ummæli
<< Home