Mikið er nú búið að bardúsa síðan síðast. Einkunnirnar voru æði, ég fékk 9 í nát, 9 í ísl og 8 í utn. Snillingurinn ég............
Svo var ég auðvitað hrikalega dugleg hér heima og þreif alveg í hólf og gólf eða næstum því. Og svo var auðvitað skreytt í hólf og gólf. Rosalegur getur maður verið vanafastur í þeim efnum. Allt skraut verður að vera á sama stað ár eftir ár. Pælingarnar á hverju ári " hvar var þetta í fyrra". Eins og það skipti einhverju máli þannig. En alltaf pælir maður og setur hlutina svo á "sína staði".
Skelltum okkur síðustu helgi í heimsókn til mömmu. Það var voða fínt. Kíktum auðvitað á nýja húsið hjá Maríu syss og það er alveg æðislegt. Svo var síðbúið afmæli hjá Þórhalli og Hólmfríði á laugardeginum en greyið Þórhallur eins og honum var nú búið að hlakka til þá fékk hann ælupest í afmælinu. Ekki skemmtilegt. Svo var nú auðvitað kíkt í Rvk aðeins. Það var farið á nokkra staði og þar á meðal var Kringlan. Þvílík mannmergð og svo hitti ég vestmannaeyinga sem sögðu mér að þetta væri ekkert. Í fyrra var það á tímabili svoleiðis að þú hreyfðist eiginlega bara með hópnum. Ég sagði bara nei takk, þetta væri alveg nóg. Hvað þá þegar maður er með 2 krakka með.
Svo auðvitað alveg indælt að koma heim til sín. Sofa í sínu rúmi og svoleiðis. Er nú að leggja lokahöndina á það sem átti að klára fyrir jól. Reyndar voru það ekki neinar framkvæmdir þannig bara eitthvað dútl sem átti eftir að klára og það er að verða búið. Nú á bara eftir að versla, dreifa jólakortum og jólapökkum og þá mega jólin koma. Gleðileg jól og lifið heil.