Júlía í skóla

laugardagur, janúar 01, 2005

GLEÐILEGT NÝTT ÁR

Jæja elskurnar mínar vildi bara óska ykkur allra gleðilegt nýtt og þakkir fyrir allt gamalt og gott.
Ég var í vinnu á gamlársballinu í gær og það var nú bara alveg þrusustuð. Dans á rósum eru nú bara helv...... góðir þegar þeir vilja. Og það var spilað til 8 í morgun eða u.þ.b. Ég var komin heim úr vinnu um kl 9 og það er svipað og í fyrra. Í ár tók ég með mér myndavélina mína og það var bara snilld. Reis á fætur um kl hálf 4 bara hress og fer aftur i vinnu í kvöld og svei mér þá ef ég tek ekki myndavélina aftur með í þetta sinn. Fór í að skoða myndirnar núna seinnipartin og það var hlegið svo mikið því fólk var bæði bara hresst eins og fólkið sem vinnur þarna á vanda til og svo voru sumir bara sótölvaðir sem voru að skemmta sér. Allavega algjör snilld. Svo stefnir nú í árshátið hjá liðinu í höllinni og þá er nú spurning um að leyfa þesstum myndum að rúlla fyrir liðið. jæja læt ykkur nú vita á morgun hvor vinir vors og blóma standa undir nafni í kvöld sem stuðhljómsveit. Lifið heil

1 Comments:

  • At 2. janúar 2005 kl. 16:35, Anonymous Nafnlaus said…

    já gleðilegt nýtt ár og það verður aldrei hægt að kalla þessa vini vors og blóma stuðhljómsveit nema fyrir litla krakka og unglingsstelpur illa sýktar af gelgjunni en það er bara mitt mat svo sjáumst við á þjóðhátíð kveðja Sigurður
    p.s svo má alveg senda manni á maili krasssandi kjaftasögur af böllunum

     

Skrifa ummæli

<< Home