Júlía í skóla

þriðjudagur, janúar 11, 2005

Á morgun

Já ég veit ég ætlaði að segja ykkur daginn eftir frá nýársballinu en það er bara svona þegar maður er hrikalega þreyttur eftir 2 löng böll í röð. Allavega voru Vinir vors og blóma alveg þrusugóðir og mikið stuð á þeim. Það voru frekar margir á ballin þannig að það var alveg geggjað að gera hjá manni. Bara ekki pása í 3 tíma samfleitt. Og þá er sko mikið að gera. Það voru ekki einu sinni til bjórglös oní liðið. Við þurftum að segja" bara sorry en við eigum bara lítil" og yfirleitt ekki við fögnuð viðstaddra.
Svo var alveg geggjað afmæli hjá Grím kokk núna um helgina. Það var þvílíkt stuð á okkur og öllu liðinu. Við Ragga, Dagrún og Kaja vorum með smá skemmtiatriði. Fengum Grím til að syngja og nú kom það endanlega í ljós að hann er eiginlega laglaus. En hann skemmti sér vel við þetta og það skiptir öllu.
Það er svo vinna næstu helgi, Þorrablót Norðlendingafélagsins og það lítur út fyrir það að það verði síðasta ballið í Höllinni í bráð. Heilbrigðisnefnd Suðurlands ætlar að beita Höllina þvingunaraðgerðum vegna þess að þeir vilja meina að það berist ennþá of mikill hávaði út. Þrátt fyrir allt sem þeir eru búnir að gera til að minnka það. Þannig að þeir mega ekki hafa böll til lengra en 1 að nóttu. Og þetta þýðir bara eitt fyrir mig, minni vinna og jafnvel enginn ef fer sem horfir. Og ég get alveg sagt ykkur það að ég er hrikalega fúl yfir þessu. Mig munar alveg þvílíkt um þennan pening í heimilisreksturinn. Þrátt fyrir að þetta sé kannski ekki mikið þá er það samt það mikið að mig munar um það. Það gildir líka fyrir fleiri sem eru að vinna þarna á böllum um helgar. Þannig að ég er pínu eða eiginlega frekar fúl. Og það virðist vera lítið sem við getum gert en starfsmannafélagið ætlar samt að reyna eitthvað.
Jæja svo að aðeins skemmtilegri hlutum. Skólinn er byrjaður aftur og mín fór í 3 fög sem ég get sagt ykkur að ég er eins og álfur út úr hól í tvennum þeirra. En ég ætla að vona að það komi nú með tímanum. Það eru alveg 11-12 ár síðan ég var í bók 103 en það hlýtur að koma. Svo er Rek 103 sem mig kvíðir líka soldið mikið fyrir. Það er ætlast til mikils af okkur þar. Þannig að þetta kemur allt í ljós.
Svo er allt brjálað að gera í bókhaldinu á fyrirtækinu líka. Komið að fyrstu vsk skýrslunni en ég fæ góða hjálp við þetta þannig að ég kvíði engu í þeim efnum.
Nú styttist í það að Sigurður bróðir flytji í nýju íbúðinna í Danmörku eða kannski ekki alveg nýja en þið vitið hvað ég meina. Vonandi fáum við einhverjar myndir þaðan og já ég veit ég þarf að fara að send ykkur myndir líka hehe. Lifið heil....

4 Comments:

  • At 12. janúar 2005 kl. 16:00, Anonymous Nafnlaus said…

    Já það er aldeilis nóg að gera hjá þér farðu þér nú bara ekki að voða svo þú farir ekki yfirum á stressi og svo stefnum við á að flytja eftir tvær vikur gaman gaman að flytja upp á 5 hæð og engin lyfta bara þröngur gangur biðjum að heilsa í rokkbæinn Vestmannaeyjar

     
  • At 16. janúar 2005 kl. 16:43, Anonymous Nafnlaus said…

    Dugleg ertu að drífa þig áfram í skólanum... Ég er sammála þetta er ferlega svekkjandi með Höllina... Vonandi leysist úr þessu.. Gangi þér annars vel í skólanum... kv. Ragna Jenný

     
  • At 25. janúar 2005 kl. 22:37, Anonymous Nafnlaus said…

    :heyja heyja heyja
    göngin komi til eyja: !!

     
  • At 23. febrúar 2005 kl. 18:51, Blogger Volosvej.dk said…

    Til hamingju med afmaelid, Julia

     

Skrifa ummæli

<< Home