Júlía í skóla

miðvikudagur, febrúar 23, 2005

Orðin Þrítug

Já nú er þrítugsafmælisdagurinn runninn upp. Og ég bíð enn eftir breytingunni hehe. Ojæja það er náttúrulega skelfilega langt síðan ég bloggaði síðast. Það liggur við að maður skammist sín bara en samt það er nú alveg búið að vera alveg ágætt að gera í skólanum og nú líður bara að því að byrja á einhverri geggjaðari ritgerð í rek AArrrgg!!!! Er næstum því ekki að nenna þessu en það er búið að vera svo gott veður undanfarna daga að maður kemst alveg í sumarfíling. Og lundin léttist og allt það.
En það var nú ekki mikið haldið upp á afmælið í dag. Það á að bíða betri tíma þegar Jón, og reyndar fleiri fjölskyldumeðlimir, er kannski heima hjá sér í smá stund annað en yfir blánóttina. Og það verður ekki fyrr en þegar loðnan er búin. En ég á von á vinkonum mínum í smá kaffi á morgun og það verður geggjað get ég lofað ykkur.
Mamma kom í heimsókn til mín í dag frá Selfossi og kom auðvitað með pakka handa dóttur sinni frá sér og systkinum og co. Fékk alveg hrikalega flotta skartgripi frá www.pilgrim.dk sem eru bara geggjaðir, reyndar líka dag og næturkrem frá Clarins. Langar bara í fleira frá þessu sama. Fékk einnig óvænta sendingu frá Jónu Sv. sem sendi mér flott rós í tilefni dagsins, takk kærlega fyrir það. Svo voru börnin svo yndisleg að vekja mömmu sína í morgun með afmælissöng og pakka sem í voru flottir skór.
En kannski leifi ég ykkur að heyra hvað það var gaman hjá okkur á morgun. Lifið heil.....

3 Comments:

  • At 3. mars 2005 kl. 20:34, Anonymous Nafnlaus said…

    nei hvað það er bara líf héldum að þú værir orðin svona gömul að þú gætir þetta ekki lengur

     
  • At 12. mars 2005 kl. 21:46, Anonymous Nafnlaus said…

    Seint kemur kveðja en kemur þó...:) Til hamingju með þrítugsafmælið Júlía.. (dí hvað við erum orðnar gamlar!)..(samt flottar sko).;) kv.ragnajenny....

     
  • At 13. apríl 2005 kl. 16:25, Anonymous Nafnlaus said…

    Sæl Júlía og til hamingju með afmælið :) ég er farin að halda að þú hafir staðnað við að verða þrítug í bloggheiminum. Koma svo blogga kona :)Kv Stebba skutla

     

Skrifa ummæli

<< Home