Skóli skóli og aftur skóli
Jæja nú er þessar skólatörn alveg að verða lokið. Var í kaflaprófi í Rek í morgun og lokaprófi í ritvinnslu. Það reyndar gekk nú ekkert neitt sérstaklega vel að því leyti, að fyrir það fyrsta þá var ekki hægt að opna wordið og svo vistaðist ekkert sem maður gerði. Þessar bév...... tölvur eru alltaf að frjósa þarna upp í skóla og maður orðin hrúleiður á því. Heilu og hálfu tímarnir fara í það að bíða eftir að tölvan detti inn og fari úr frostna ástandinu. Frekar pirrandi hvað þá þegar maður er í lokaprófi. En allavega verður að taka restina af prófinu á morgun því hálfur tíminn í dag fór í það að bíða eftir tölvunum. Svo eru bara lokaprófin að byrja í næstu viku. Ég er reyndar svo hrikalega heppinn að fara bara í tvö lokapróf af fjórum áföngum í næstu viku og er þá bara búin og komin í sumarfrí, jibbý .
Þá tekur bara við vinna í kringum Braggabíla. Erum að vinna í auglýsingum og dreifimiðum og nafnspjöldum. Allt bara að koma. Svo á ég auðvitað eftir að færa mikið af bókhaldi sem hefur eiginlega bara sitið á hakanum.
Fór i kaffi til Maju pæju í gær og það var svo fínt. Dagrún mætti líka og það var mikið spjallað og hlegið. Búið að vera fín vinna undanfarið í Höllinni við fermingar og slíkt. Svo erum við mæðgurnar að fara upp á land á laugardaginn að keppa á móti í fimleikum. Þar að segja Íris ætlar að keppa og ég ætla að vera fararstjóri og horfa á.
Gleymdi líkað setja ykkur frá hverju rosalega vel tókst til um daginn í kórferð sem Íris og litlu lærisveinarnir fóru í. Var sko farastjóri þar líka. En allavega þær voru meiriháttar
Svo er það bara handboltinn sem tröllríður öllu núna. Stelpurnar að keppa í gær og það gekk ekki nógu vel. Töpuðu með einu marki, þvílíkt svekkelsi en svona er þetta. Þær taka þetta bara í næsta leik. Svo eru strákarnir líka komnir í úrslit við Hauka eins og stelpurnar. Þeir byrja næstu helgi held ég. Reyndar var ég orðin pínu pirruð á Haukastuðningmönnum í gær. Stór hópur sat fyrir framan mig sem var nú allt í lagi og þeir klöppuðu og alllt það en það sem pirraði mig var það að þeir eða aðalega einn var alltaf að standa upp. Og ég missti úr slatta af leiknum því ég sá ekki í gegnum hann. Gat ekki einu sinni fært mig því það var setið allstaðar í kringum mig. Og þó svo hefði verið þá hefði ég bara ekki séð þaðan heldur. Svo þegar ég sagði við þá " setjisti nú svo ég sjá leikinn" þá sagði einn við mig "þú horfir bara á upptökuna". Ég bara hvaða upptöku, ég tek ekki leikinn upp á vídeó ég mæti bara á hann til að horfa á hann. Svo sagði þau" hvað það er ekkert að ske". Ja ég mundi allavega ekkert vita um það því ég sá bara bakið á þeim. Svo var ég alveg yfirmig hneyksluð á ummælum einhvers á spjalli ÍBV í gær, kíkið neðarlega, fólk ætti bara að skammast sín að segja svona http://www.xtreme.is/ibv.is/index2.php?p=300&i=950&tid=1759&o= En það er bara að snúa sér að næsta leik, áfram ÍBV. Lifið heil