Skólinn búin í bili
Jæja elskurnar mínar skólinn hjá mér er bara búin. Var í síðasta prófinu í morgun. Það var rek og mér fannst prófið ekkert erfitt en ég veit að ég gerði einhverjar villur í reikningum en það verður bara að hafa það. Gekk líka alveg þrusuvel í bókfærsluprófinu á laugardaginn. Beið allan tímann eftir því að ég kæmi að einhverju erfiðu í prófinu en það kom aldrei. Fínt að fara í svoleiðist próf. Svo fékk ég út úr ritgerðinni minni um daginn. Hún var upp á 9,5. Bara glæsilegt að mínu mati. Er bara frekar stolt af þessu hjá mér. Allavega var ég hæst í bekknum. Næsti fyrir neðan mig fékk 8,5 þannig að þetta er fínt. Svo er mér búið að ganga mjög vel í öllum prófum í vetur í rek, fékk 9,8 - 8,9 - 9,5 og 8,5. Nú þarf ég bara að ath með skólann næsta vetur. Er ekkert búin að gera í þeim málunum. Verð bara að drífa í þessu. Því nú er ég komin á bragðið og þá er um að gera að halda áfram.
Vildi svo bara segja ykkur hvað hún dóttir mín er dugleg. Hún vann gull fyrir gólfæfingar í fimleikamótinu sem hún var að keppa í um daginn. Rosamontinn af því. Brosið var eiginlega límt á hana allan daginn. Svo var vestmannameistaramótið núna um helgina og hún var að keppa á því. Hún fékk brons þar fyrir gólfæfingarnar sínar. Og auðvitað var hún mjög ánægð með það. Henni gekk mjög vel á hinum áhöldunum líka þó það hafi ekki endað í sæti en ég sé flottar framfarir hjá henni. En það var mjög skemmtilegt á fimleikamótinu með öllum krökkunum um daginn. Þetta var stór hópur af ungum krökkum og þeim fannst þetta bara skemmtilegt og mér líka.
En nú er ég eiginlega bara kominn í sumarfrí þannig séð. Krakkarnir eiga eftir einn mánuð og það þarf að hjálpa þeim eitthvað fyrir prófin þeirra. En ef einhver er með vinnu fyrir mig frá svona 8-9 til 12-13 virka daga þá látið mig vita. hehe en án gríns þá myndi ég alveg þiggja smá vinnu bara til að komast út og krakkarnir eru það stórir að þau geta verið ein á morgnana svo nú er bara að kíkja eftir draumadjobbinu. lifið heil

1 Comments:
At 18. maí 2005 kl. 15:13,
Volosvej.dk said…
Til hamingju med arangurinn :)
Skrifa ummæli
<< Home