Sól, sól skín á mig
Nú er komið að því hjá okkur fjölskyldunni, það á að setja upp pall. Búið að stinga út og grafa, ná í smá timbur og svo á að nota löngu helgina til að vinna í þessu öllu saman. Þannig að nú vonast maður eftir sól eða allavega ekki rigningu. En miðað við veðrið núna þá held ég að þetta sé borin von. Enda er hvítasunnuhelgi, man bara ekki eftir að það sé gott veður þá helgi. En allavega þegar pallurinn er kominn upp þá á að koma sól, svo pallurinn nýtist nú vel.
Við Maja erum búnar að vera duglegar í labbinu alla þessa viku, síðan prófin kláruðust. Ég hef reyndar ekki verið sú duglegasta að vakna á morgnana með börnunum en tók mig á í dag og fór á fætur kl 7,15. Hrikalega getur maður verið duglegur hehe. Það er búið að vera mjög frískandi að ganga svona á morgnana. Þannig að vonum eftir góðu veðri fyrir göngur og pallagerð. lifið heil

2 Comments:
At 16. maí 2005 kl. 22:49,
Nafnlaus said…
Já þá er bara að fara bjóða í pallapartý vinan :)
Kveðja Stefanía
At 25. maí 2005 kl. 20:00,
Nafnlaus said…
Eftir að hafa lesið fyrstu línurnar um ykkur Birgi leit þessi grein út fyrir að við Sigurður værum þessir líka sullarnir............. svo bættir þú um betur í miðri grein......... Takk fyrir það.
Skrifa ummæli
<< Home