Skírnin
Já nú er búið að gefa litla prinsinum nafn og skíra hann. Honum var gefið nafnið Kristján Logi og er Kristjáns hlutinn eftir afa hans honum Hermanni Kristján. Restin var bara svona út í bláin. Þetta gekk nú svona nokkuð vel fyrir sig, drengurinn þurfti nú aðeins að pústa út í miðri athöfn. Það er næstum hægt að segja að gráturinn hafi yfirgnæft sönginn í prestinum og fólkinu í athöfninni. Skemmtilegt eða þannig.
Allavega vorum við bara með athöfnina hér heima og nýji presturinn hann Guðmundur Örn skírði og var það bara mjög fínt hjá honum. Svo klikkuðu við hjónin á því að bjóða greyið prestinum veitingar með okkur eftir á. Ég hélt að Jón hefði boðið og Jón hélt að ég hefði boðið. Svo greyið presturinn fór bara heim og fékk ekkert að snæða hjá okkur. Sem varð til þess að ég var með þvílíkan móral í allan gærdag þegar ég uppgötvaði mistökin og hann er enn til staðar.
Svo verð ég líka að minnast á alla hjálpina sem ég fékk hjá Maju vinkonu. Hún eldaði og stóð svo eiginlega vaktina í eldhúsinu. Og ekki voru Dagrún, Ragga og Anna síðri. Bara æðislegt að eiga svona góðar vinkonur. Svo varð mamma eftir hjá mér í gær og hjálpaði með peyjan og við Jón gátum eiginlega gengið frá öllu.
Svo fór ég nú að skoða myndirnar úr veislunni og uppgötvaði þá það að það hefði alveg gleymst að taka myndir af Kristjáni og fjölskyldumeðlimum í skírnarkjólnum. Hann reyndar var ekki mjög ánægður þarna á eftir, grenjaði og var almennt þreyttur. En við getum nú bætt úr því síðar eða bara fljótlega en við getum víst ekki bætt þetta með prestin nema að biðja hann innilegrar afsökunar á þessu klúðri. Eins og þið heyrið enn með móral. En hér kemur ein mynd af prinsinum hjá Herdísi ömmu og Hermanni afa. Lifið heil

2 Comments:
At 26. mars 2008 kl. 13:24,
Nafnlaus said…
kannski maður fari að blogga bráðum aftur kv Júlía
At 13. apríl 2008 kl. 14:28,
Nafnlaus said…
Vildi kvitta fyrir mig ..álpaðist hér inn af Maju síðu. Bæ bæ Ragna rugludolla
Skrifa ummæli
<< Home