Júlía í skóla

fimmtudagur, október 21, 2004

blogg í skólanum

Sæl öll
Nú er svo komið að ég Júlía Elsa er byrjuð að blogga. Ekki er það nú af einhverri mikilli þörf fyrir að deila lífi mínu með netheiminum heldur er þetta verkefni sem ég er að vinna í tölvutíma í skólanum. Já ég er byrjuð í framhaldsskóla orðin þetta gömul. Eða ég er nú ekki svo gömul bara 29 en. Og ég er nú ekki sú elsta í tímunum sem ég er í. En þetta er búið að vera gaman það sem af er. Ég er búin að sjá að maður verður betri í skóla eftir því sem maður eldist. Maður verður vandvirkari og er tilbúnari í það að læra. Þannig að hver veit nema ég verði húkt á þessu að vera í skóla og vilji hvergi annars staðar vera.
Ég á ekki eftir að sjá það að ég verði eitthvað rosalega dugleg við þetta blogg. Því ég er nú ekki neinn svaka penni. Annað en bróðir minn og vinir. En það má reyna. Kannski ég leyfi Írisi dóttur minni að tjá sig hér því hún þarf nú alltaf að segja svo mikið. En þetta dugar í dag. Lifið heil.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home