Júlía í skóla

mánudagur, nóvember 15, 2004

Vika liðin

Nú er alveg komin vika síðan ég skrifaði eitthvað síðast. Það liggur við að maður fái samviskubit. En svona er lífið þegar það er bara nóg að gera hjá manni þá eru blogg skrifin eitthvað sem liggur á hakanum. Það var alveg ágætt að gera þessa vikuna. Fékk stóran plús i kladda hjá íslensku kennaranum mínum fyrir lista yfir fólk með viðurnefni, sem ég kom með í skólan. Við áttum að koma með nokkur nöfn en ég kom með 182 nöfn. Ég byrjaði á listanum með hjálp og héldu þau bara áfram að koma. Svo fór tíminn í skólanum bara að kíkja á þessi nöfn og söguna á bak við nöfnin. Það voru nú nokkrar mjög góðar.
Laugardagurinn fór í vinnu. Mætti kl 11,30 um morguninn og var búin um 2 um nóttina. Var kominn með góðan seyðing í fæturnar. En auðvitað peninganna virði.
Svo er það auðvitað stórfrétt vikunnar hjá okkur. Hjólið er komið alla leið til okkar. Mikil gleði með það. En pínu vonbrigði voru þau að hjólið leit nú ekki jafn vel út eins á myndum. En það er ekkert sem er ekki hægt að lagfæra með smá vinnu og þrifum. Það var orðin svo mikil tilhlökkun með þetta hjól hjá yngri deildinni á heimilinu. Þannig að þegar hjólið kom loksins fóru þau eiginlega yfir um.
Nú er komið að einu prófinu í viðbót í nát. Þarf að æfa mig í dag fyrir það. Svo er kaffi hjá Maju vinkonu á eftir. Mikil tilhlökkun með það. Alltaf gott að fá kaffi hjá þessu liði. Svo á að skríða aftur ofan í bækurnar.
Börnin voru bara send heim í morgun loksins þegar skólinn byrjaði aftur. Kennarar tilkynntu veikindi í hrönnum og engin kennsla. Maður getur og er orðin frekar pirraður.
En þegar ég hugsa til kaffisins og meðlætis og þessa yndislega fólks sem ég er að fara að hitta í dag hjá Maju þá hverfur bara pirringurinn. Lifið heil

1 Comments:

  • At 15. nóvember 2004 kl. 18:22, Anonymous Nafnlaus said…

    hvernig væri nú að koma með þennan lista um viðurnefni á fólk og leyfa okkur hinum að fræðast um þau haaaaaaaaa Júlía
    kveðja siddi og anita

     

Skrifa ummæli

<< Home